Einstaklega fallegur sundtoppur úr Tazar línu Marie Jo.
Mosagrænn með marglitu keðjumynstri og rauðbrúnum líningum.
Full cup snið með spöngum. Rykkingar á efni í skálum.
Smelltur í bak með gylltri festingu. Stillanlegir hlýrar.
Hægt er að krossa hlýra í bak eða fjarlægja hluta af hlýrum og festa í háls.
Toppurinn er fóðraður að framan og aftan og veitir góðan stuðning og lyftingu.
Innihald: 59% polyamide 14% elastane 27% polyester
Leiðbeiningar um umhirðu sundfatnaðs:
Eftir notkun í klórblönduðu vatni skal skola sundföt vel með sápu.
Sólarvörn er mjög ætandi á sundfatnað og getur skilið eftir ljóta bletti. Það er því mikilvægt að skola með sápu eftir notkun.
Mikil seta í heitum pottum getur valdið sliti á bakhluta sundfata
Þeytivindur eru versti óvinur sundfata og styttir líftíma þeirra verulega.
Lífstykkjabúðin getur ekki ábyrgst sundföt eftir notkun nema að um augljósan galla sé að ræða.