Við kynnum nýtt merki í Lífstykkjabúðinni.
Saltabad er sænskt merki sem sérhæfir sig í sundfatnaði fyrir konur á öllum aldri.
Dolly, sundtoppur frá sænska merkinu Saltabad.
Svartur.
Stillanlegir hlýrar.
Kræktur í bak.
Skálar eru fóðraðar og með spöngum.
Veita góðan stuðning og lyftingu.
Slaufa sem hægt er að víkka eða þrengja að framan.
Athugið að sundfatnaður getur stækkað um allt af hálfu númeri í vatni.
Innihald:
92% polyamide
8% elastane
Leiðbeiningar um umhirðu sundfatnaðs:
Eftir notkun í klórblönduðu vatni skal skola sundföt vel með sápu.
Sólarvörn er mjög ætandi á sundfatnað og getur skilið eftir ljóta bletti. Það er því mikilvægt að skola með sápu eftir notkun.
Mikil seta í heitum pottum getur valdið sliti á bakhluta sundfata.
Þeytivindur eru versti óvinur sundfata og styttir líftíma þeirra verulega.
Lífstykkjabúðin getur ekki ábyrgst sundföt eftir notkun nema að um augljósan galla sé að ræða.